GleðiVirðingSköpunÞekkingaleit
Leikskólinn Holt - Forsíða  Senda tölvupóst  Prenta þessa síðu   Stór leturstærð Venjuleg leturstærð     Leita


Viðbragðsáætlun

Sumarlokun

Leikskólinn verður lokaður vegna sumarleyfa frá 19.júní-20.júlí 2012 að báðum dögum meðtöldum.

Forsíða

27. janúar 2012

Þorrablót

Í dag föstudag vorum við með þorrablót á Holti. Allar deildir hittust í sal og sungu saman og fengu að skoða gamla hluti frá byggðasafninu. Í söngstund fengum við góða gesti hann Grím bónda og félaga hans. Síðan í hádeginu fengum við grjónagraut og smakk á súrmat, sviðasultu, harðfiski og hákarli sem Þröstur pabbi Ástrósar og Sigmundar færði okkur við færum honum kærar þakkir fyrir. Hér til hliðar má sjá nokkrar myndir úr söngstund. Meira
 
27. janúar 2012

Góðar gjafir frá foreldrafélaginu

Stjórn foreldrafélagsins kom færandi hendi í vikunni. Félagið gaf leikskólanum fjögur spil sem eiga eftir að nýtast vel í starfi. Við færum félaginu góðar þakkir fyrir. Meira
26. janúar 2012

Ófærð

Leikskólinn er opin í dag en við viljum benda á að mikil ófærð er í kringum leikskólann. Foreldrar eru beðnir um að meta ástandið því aðkoma að skólanum er fljót að teppast. Meira
 
19. janúar 2012

Þorrinn gengur í garð

Á morgun er bóndadagur sem er upphaf Þorra. Á þorranum finnst okkur góður tími til að rifja upp gamla siði, syngja þjóðleg lög og fræðast um fyrri tíma. Á Holti ætlum við að vinna áfram með sögur og... Meira
12. janúar 2012

Þorraþema

Dagana 17.-20.janúar ætlum við að vinna í nánu samstarfi við Akurskóla og leikskólann Akur. Elstu börnin á Holti og Akri og yngstu börnin í Akurskóla blandast og velja sér staði til að vinna á fyrir ... Meira