GleðiVirðingSköpunÞekkingaleit
Leikskólinn Holt - Forsíða  Senda tölvupóst  Prenta þessa síðu   Stór leturstærð Venjuleg leturstærð     Leita

Viðbrögð vegna
heimsútbreiðslu inflúensu

Sumarlokun

Leikskólinn verður lokaður vegna sumarleyfa frá 19.júní-20.júlí 2012 að báðum dögum meðtöldum.

Kot

Á Koti er 21 barn öll fædd árið 2006. Á deildinni starfa fjórir kennarar, Sigurbjört (Systa), Ólöf Elín, Anna og Merete.

 

Á Koti finnst okkur mikilvægt að börnin fái að njóta sín og læra í gegnum leik. Mikilvægt er að efla alla þroskaþætti barnanna til hreyfingar, listsköpunar, tjáningar og sterkari félagsvitundar.

 

Þennan vetur munum við byggja á áherslum fyrra árs með læsi og lestrarumhverfi fyrir börnin. Við leggjum áherslu á að stafir séu sýnilegir, form, litir, tölur og einnig ritmálið. Við vinnum með mörg hjálparefni líkt og Markviss málörvun – Sögugrunnur – Leikum með stafi og hljóð – Lubbi finnur málbein – Ótrúleg eru ævintýrin – CAT o.fl. Eftir áramót verður unnið með bókina „Litli dreki Kókoshneta byrjar í skóla“, til að efla enn frekar tengsl leik – og grunnskóla.

 

Til að athuga hljóð- og málvitund barnanna fara þau í Hljóm-próf í haust. Hljóm er próf í leikjaformi sem kannar hljóðkerfisvitund elstu barnanna í leikskólanum.

 

Til að efla stærðfræðihugsun munum við nota mjög áhugavert og fræðandi kennsluefni sem nefnist Numicon. Numicon er viðurkennt breskt stærðfræðikerfi sem tekur mið af styrkleikum barna og hjálpar þeim að skilja tölur og tengsl milli talna.

Einnig hafa börnin greiðan aðgang að ýmsum kubbum eins og t.d einingakubbum og holkubbum þar sem börnin fá tækifæri til að telja, bæta við, draga frá, flokka og læra hugtök í tengslum við stærðfræði.

 

Tónlistin setur sterkan svip á starfið og áhersla er lögð á næmni fyrir hljóðum, hreyfingu og hrynjanda. Við vinnum með tónlistarhugtök eins og sterkt – veikt. Við syngjum mikið og reynum þá að velja gömul íslensk lög, nýja tónlist, barnalög, hreyfisöngva o.fl. Unnið er með söng og hlustun oft á dag í tónlistartímum, samverustundum, söngstundum, vinnustundum, hvíldarstundum og í fataklefa.

Í tónlistartímum með Geirþrúði tónlistarkennara er unnið út frá sönglögum og leitast er við að hafa fjölbreytt lagaval. Börnin læra að umgangast hljóðfærin í stofunni, þekkja þau með nafni, æfa sig í að hlusta eftir mismunandi blæ og læra þannig að þekkja hljóðfærin eftir heyrn.

 

Listasmiðja er í boði fyrir börnin þar sem ánægja, sköpun og hæfileikar fá að njóta sín til fullnustu. Salurinn er í boði fyrir börnin bæði sem kubbasmiðja og til skipulagðar og frjálsrar hreyfingar.

 

Umhverfismál eru okkur hugleikin og fengum við Grænfánann í annað sinn í vor. Unnið verður áfram með endurvinnslu og garðrækt með ýmsum hætti.

Í vetur ætlum við á Holti að vinna með „Sögur og ævintýri“.  Unnið verður út frá einni bók eða sögu/ævintýri þar sem börnin fá sjálf að ráða förinni. Könnunaraðferðin og aðferðir Reggio Emilia verða í öndvegi til að nálgast viðfangsefnið. Við leggjum áherslu á að börnin fái að uppgötva, kanna, rannsaka, skapa og reyna sjálf. Í gegnum verkefnið fá þau fjölbreytt tækifæri til að læra og vera vakandi fyrir því sem þau sjá og heyra. Við höfum einkunnarorð leikskólans að leiðarljósi sem eru: gleði – virðing – sköpun – þekkingarleit.

Stöðvavinna verður þrisvar í viku, þar sem börnin velja sér svæði og vinna í verkefnum til lengri eða skemmri tíma, allt eftir áhuga og þróun viðfangsefnisins. Í stöðvavinnu er fjölbreytt leikumhverfi bæði úti og inni, auk þess gott aðgengi að leikefni og efnivið sem hvetur og styður barnið í þekkingarleit sinni. Við val á viðfangsefni er tekið mið af reynslu og áhuga barnsins og um leið verið að styrkja sjálfsmynd og sjálfsvitund þess.

Við munum leggja spurningar fyrir börnin nú í haust varðandi sögur og ævintýri og fylgja þeim svo eftir aftur næsta vor. Þannig getum við séð hvað börnin hafa upplifað og uppgötvað yfir veturinn. Spurningarnar eru þessar:

-          Hvað er ævintýri?

-          Hvað er saga?

-          Hvað gerist í ævintýri?

-          Hverjir eru í ævintýri?

-          Getur þú lent í ævintýri?

-          Getum við lært eitthvað af ævintýrum?

Umhverfi leikskólans og útinám mun eiga veglegan sess já okkur í vetur og munum við taka þátt í þróunarverkefninu „Uppbygging útikennslusvæðis“ ásamt Akurskóla og leikskólanum Akri.  Útikennslusvæðið hefur fengið nýja staðsetningu við Narfakotsseylu, sem er rétt við Víkingaheima. Vinna við byggingu þess hefst haustið 2011.

Markmið uppbyggingu útikennslusvæðis eru:

 

Byggja upp útisvæði sem fellur að umhverfinu og sem nýst getur börnum, nemendum, kennurum og öðrum til útivistar

?  Börn og nemendur taki virkan þátt í uppbyggingu útisvæðis frá upphafi til enda

Efla tengsl og tilfinningu barna og nemenda gagnvart náttúrunni

?  Auka umhverfismeðvitund, efla áhuga og jákvætt viðhorf til útináms og útiveru

?  Nemendur og kennarar upplifi möguleika útináms

?  Auka samstarf grunnskóla- og leikskóla

?  Auka samstarf við stofnanir og fyrirtæki í samfélagi

Afmælisdagar barna á Koti

 

Börn fædd 2006

 

Guðrún Ósk  5.janúar

Margrét Norðfjörð   17. janúar

Antonía Líf   24. janúar

Ægir Páll 8. febrúar

Salvar Gauti 20. febrúar

Lárus Valberg  16. mars

Hanna Sigríður   6. apríl

Emilía Isobel 7. apríl

Inga Bryndís  2. maí

Álfrún 10. júní

Sólveig Björk  13. júní

Helga Lára  6. júní

Karolína  15. júlí

Ástrós Ylfa  23. júlí

Gabriella Rósa 24. júlí

Sigurður Ísak   24. júlí

Sæþór  29. ágúst

Hafsteinn  5. september

Lena Natalía  13. september

Hafþór Gísli  8. október