Umhverfi og náttúra - með áherslu á himingeiminn
Markmið
Viðfangefnið býður upp á fjölbreytta og áhugaverða vinnu. Með því að taka viðfangsefnið: Umhverfi og náttúra, fyrir viljum við vekja áhuga barnanna á umhverfinu og himingeimnum, gera þau vakandi fyrir því sem þau sjá og heyra til að þau fari að velta hlutum fyrir sér. Það kennir okkur að taka betur eftir því sem er í kringum okkur, skynja og upplifa. Börnin fá tækifæri til að rannsaka og læra að þekkja hugtök, eðli og eiginleika hluta með því að kanna og uppgötva á eigin forsendum. Börnin verða öruggari og tilbúnari að bæta við þessa þekkingu sína síðar á lífsleiðinni. Einn þáttur í stöðvavinnu vetrarins verður uppbygging útikennslusvæðis sem er samstarfsverkefni leikskólanna Holts, Akurs og Akurskóla.
Markmið uppbyggingu útikennslusvæðis eru:
· Byggja upp útisvæði sem fellur að umhverfinu og sem nýst getur nemendum, kennurum og öðrum til útivistar
· Nemendur taki virkan þátt í uppbyggingu útisvæðis frá upphafi til enda
· Efla tengsl og tilfinningu barna og nemenda gagnvart náttúrunni
· Auka umhverfismeðvitund, efla áhuga og jákvætt viðhorf til útináms og útiveru
· Nemendur og starfsfólk upplifi möguleika útináms
· Auka samstarf grunnskóla- og leikskóla
· Auka samstarf við stofnanir og fyrirtæki í samfélaginu
Verkefnið á að vera nemendastýrt en unnið verður samkvæmt könnunaraðferðinni.
Vettvangsferðir
Við byrjum á því að fara í vettvangsferðir, sem eru hugsaðar til þess að skoða umhverfið og náttúruna í sínu víðasta ljósi. Börnunum er skipt í hópa, myndavél er með í för til að fanga hugmyndir og áhugasvið þeirra. Þegar hóparnir koma aftur í leikskólann setjast allir niður og ræða um hvað þau hafa séð og margir teikna myndir af ýmsu sem þau hafa upplifað.
Viðtöl
Í framhaldi af vettvangsferðunum tökum við börnin í viðtöl, þá setjumst við niður með hverju barni fyrir sig og spyrjum þau nokkurra spurninga.
· Hvað er himininn?
· Hvað er í himninum?
· Hvernig er himininn?
· Hvað er himingeimur?
Síðan teikna þau sína fyrstu mynd af himingeiminum.
Stöðvavinna
Þegar börnin eru búin í viðtölunum þá er byrjað í stöðvavinnu og börnin velja sér viðfangsefni sem þau hafa áhuga á. Vangaveltur þeirra um himingeiminn og upplifun verður einnig skoðuð og skráð niður. Þannig hefst hið eiginlega verkefni okkar sem byggist á Könnunaraðferðinni og aðferðum Reggio Emilia.