Um foreldrafélagið:
Foreldrafélagið samanstendur af öllum þeim foreldrum sem eiga börn í leikskólanum.
Foreldrafélagið sér um ýmis konar skemmtanir og uppákomur fyrir
börnin utan leikskólans og gefst þar foreldrum tækifæri til að
kynnast, sem er undirstaða góðs foreldrafélags. Foreldrafélagið getur
stutt leikskólann í tækja- og leikfangakaupum.
Foreldrafélagið getur verið þrýstihópur og beitt þrýstingi á
bæjaryfirvöld til að fá málefnum leikskólans framgengt.
Stjórn foreldrafélagsins 2011-2012
Formaður: Agnes Ásgeirsdóttir agnes.asgeirsdottir@gmail.com
Gjaldkeri: Þóra Guðrún Einarsdóttir
Halldóra Hreinsdóttir
Anna María Jónsdóttir
Aðalheiður Hanna Björnsdóttir
Ásta María Guðmundsdóttir
Brynja Guðmundsdóttir
Helena María Árnadóttir
Ellen Dóra Erlendsdóttir
Emma Dröfn Víkingsdóttir
Við í stjórninni hvetjum ykkur foreldrar, sem vilja vera virkir í
félaginu til að hafa samband við okkur og einnig ef þið hafið
ábendingar eða hugmyndir sem þið viljið koma á framfæri.
Gíróseðlar:
Innheimta gíróseðlanna er stærsti fjáröflunarþáttur foreldrafélagsins
og eru seðlarnir sendir út í byrjun skólaárs (september). Gjaldið er kr.2900,-
fyrir allt árið. Fyrir systkini er aðeins greitt hálft gjald fyrir
annað barnið. Við viljum hvetja þá foreldra sem enn eiga eftir að
greiða sinn gíróseðil að gera það. Munum að þetta eru peningar sem
fara eingöngu í skemmtanir fyrir börnin okkar.
Einnig viljum við minna á Facebook síðuna okkar. Foreldrafélag
leikskólans Holts, endilega kíkja og skrá sig á hana.